Safarí og sólarferð til Kenía og Zanzibar 30. janúar – 12. febrúar 2026

995.000 kr.

Það er stórkostleg upplifun að fara í Safarí og í þessari ferð heimsækjum við Masai Mara þjóðgarðinn og Naivasha vatnið. Þar er fjöldinn allur af villtum dýrum, og búumst meðal annars við að sjá: ljón, gíraffa, fíla, antílópur, blettatígur og flamingó fugla. 
Fróðir leiðsögumenn fræða okkur um dýralífið þar sem við keyrum um í einstakri náttúrufegurð.
Við endum svo ferðina í 5 nætur á hinni fallegu eyju Zanzibar. 

Ferðin kostar : 995.000 kr. á mann m.v. 2 fullorðin saman í herbergi. Einstaklingsherbergi kostar 155.000 kr. aukalega.

Hægt er að bóka sig í ferðina og greiða staðfestingargreiðslu hér

Skoðið nánari lýsingu á safarí og sólarferðinni til Kenía og Zanzibar hér fyrir neðan:

Áfangastaður

Ferðalýsing

 

 

Í safaríferðinni til Kenía förum við í safarí ferðir með innfæddu leiðsögufólki sem deilir með okkur þekkingu sinni um dýrin og umhverfið þeirra. Við byrjum ferðina í Naíróbí þar sem við förum í safarí í höfuðborginni, þar næst höldum við til hins fræga Maasai Mara þar sem við vonumst til að sjá öll „big five“. Þar næst höldum við að Navaisha vatninu þar sem við siglum til Crescent eyjunnar þar sem við göngum um með innfæddum leiðsögumanni. Við endum svo ferðina á paradísareyjunni Zanzibar í 5 nætur.

Fararstjóri í ferðinni er Ingibjörg Björnsdóttir. Hún er vanur fararstjóri og hefur skipulagt ferðir og verið fararstjóri í  Afríku, Suður-Ameríku og Evrópu. Hún hefur ferðast víða og bjó lengi erlendis en flutti aftur heim til Íslands árið 2019 eftir 1 árs ferðalag um Evrópu og Afríku. Hún hefur mikinn áhuga á menningu og ferðalögum og að fara í safaríferð er eitthvað sem hún mælir með að allir sem hafa tækifæri prófi minnst einu sinni á ævinni.

Dagur 1: 30. janúar – Keflavík til London 

Flogið með Icelandair til London kl. 16:20,  þaðan sem við fljúgum með Emirates til Dubai, og þaðan til Naíróbí. Við lendum í Naíróbí kl. 14:40 á staðartíma.

Dagur 2:  31. janúar- London til Naíróbí

Lendum í Naíróbí kl. 14:40 á staðartíma.  Rúta bíður okkar á flugvellinum og keyrir okkur á hótelið Four points by Sheraton þar sem við gistum fyrstu 2 næturnar. 

Dagur 3: 1. febrúar – Naíróbí – Frjáls dagur

Frjáls dagur í Naíróbí.

Snemma morguns er valfrjáls ferð fyrir þau sem vilja þar sem byrjum við að kynnast dýralífinu í Kenía og förum í fyrstu safaríferðina okkar, þar sem við heisækkum þjóðgarðinn í Naíróbí. Þjóðgarðurinn spannar 171 km2, er í útjaðri Naíróbí og er ⅙ af höfuðborgarsvæði Naróbí. Það er bæði fjölbreyttur gróður og dýralíf í þjóðgarðinum og búast má við að sjá sebrahesta og margar tegundir af antílópum,  einnig er mögulegt að sjá bæði svarta og hvíta nashyrninga, flóðhesta, ljón, hlébarða og fleiri dýr. 

Seinni partinn er tækifæri til að heimsækja Karen Blixen safnið og Maasai markað.

(Morgunverður innifalinn)

Dagur 4:  2. febrúar – Naíróbi til Maasai Mara

Eftir morgunverð er tékkað út hótelinu og við keyrum snemma af stað til Maasai Mara. (U.þ.b 6 klukkustundir) Innritum okkur á Mara Serena Lodge, borðum hádegisverð og svo verður farið í eftirmiðdags safarí í þjóðgarðinum. Kvöldverður er borðaður á Mara Serena Lodge. 

Hið fræga Maasai Mara er hluti af Mara-Serengeti svæðinu sem er 40.000 km². Masai Mara svæðið er 1510km². Masai Mara er þekkt fyrir stórkostlegar hjarðir af villtum dýrum, svartmakka ljón, hlébarða og blettatígur og flest allar dýrategundir sem finnast í Kenía.

Masai Mara - ljónynjur

Gist er á Mara Serena Lodge næstu 3 næturnar. 

Sundlaug
Hjónaherbergi
Mara Lodge herbergi og svalir
Borðstofa
Mara Serena atmosphere
Mara Serena veranda
Mara Serena útiborðstofa
Mara Serena herbergin
Mara Serena úti
Terrace
líkamsrækt
previous arrow
next arrow

(Morgunverður á Four points by Sheraton, hádegisverður og kvöldverður á Mara Serena Lodge)

Dagur 5: 3. febrúar – Maasai Mara 

Valfrjáls aukaferð snemma morgunin er að fara í loftbelg yfir Maasai Mara og kampavínsmorgunverð þegar lent er aftur. 

Safaríferð í Maasai Mara þjóðgarðinum um morgunin. Í safaríferðum dagsins keyrir leiðsögubílstjórinn meðal annars að Mara ánni til að sjá flóðhesta og krókódíla, og auk þess að sjá gíraffa, sebrahesta, gnýi og buffaló þá gætuð þið séð ljón, blettatígur og hlébarða. 

Eftir ferðina keyrum við til baka í lodge-ið í hádegisverð og förum svo seinni partinn í eftirmiðdegis safaríferð.

Dagur 6: 4. febrúar – Masai Mara 

Safaríferð í Maasai Mara þjóðgarðinum um morguninn og upplifum fallegt graslendið i Masai Mara og dýralífið.

Borðum hádegisverð á Mara Serena Lodge og seinnipartinn heimsækjum við Maasai þorp.

(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn á Mara Serena Lodge)

Dagur 7: 5. febrúar – Masai Mara – Naivasha vatnið

Eftir morgunverð tékkum við út af herberginu og keyrum til Naivasha, fylgjumst með dýralífinu á meðan við keyrum út úr þjóðgarðinum.  Keyrt er í gegnum Great Rift dalinn í Kenía, og í gegnum Narok sem er eini Masai bærinn.(Rúmlega 5 klukkustundir)  Hádegisverður á Lake Naivasha Sopa Lodge og frjáls tími restin af deginum til að njóta þess að vera á resort-inu. Mögulegt að skipuleggja auka ferð til Hells gate þjóðgarðsins, ef áhugi er. 

Gist á Lake Naivasha Sopa Resort næstu 2 næturnar. Resortið er staðsett á 60 hektara landsvæði þar sem gíraffar, waterbuck, vervet og colobus apar eiga heimkynni.

sundlaug Lake Naivasha
Lake Naivasha room-exterior
Lake Naivasha hjónaherbergi
Lake Naivasha dining
Lake Naivasha buffet
Lake Naivasha outside dining
Lake Naivasha shared area
Lake Naivasha giraffe-in-the-gardens259FD0C0-1D71-A961-F3BA-8006BD442386
Lake Naivasha waterbucks-in-the-vicinity
Lake Naivasha swimming pool
Lake Naivasha gym
previous arrow
next arrow

(Morgunverður á Mara Serena Lodge, hádegisverður og kvöldverður á Lake Naivasha Sopa Resort) 

Dagur 8: 6. febrúar – Naivasha vatnið

Eftir morgunverð er siglt á Naivasha vatninu til Crescent eyjunnar. Gengið eru um eyjuna með leiðsögumanni þar sem eru sebrahestar, gíraffar og mismunandi tegundir af antílópum og hægt að gefa strútum að borða. Frjáls tími seinni partinn á Lake Naivasha Sopa Resort

(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður á Lake Naivasha Sopa Resort.)

Dagur 9: 7. febrúar – Naivasha – Nairóbí – Zanzibar

Eftir morgunverð er keyrt frá hótelinu til flugvallarins í Naíróbí (uþb, 2 tímar og 30 mínútur), þaðan sem flogið er til Zanzibar.

Rúta bíður okkar á hótelinu og keyrir okkur á Karafuu Beach Resort og Spa þar sem við gistum næstu 5 næturnar. Bókað er hálft fæði, en hægt er að breyta í All inclusive fyrir þau sem vilja.

Dagur 10-13: 8.-11. febrúar – Zanzibar

Frjáls tími í Zanzibar

Dagur 14:  12. febrúar – Flug heim til Íslands gegnum Dubai og London

Við höldum af stað út á flugvöll eldsnemma, flugið okkar flýgur kl. 05:35 frá Zanzibar til Dubai með Emirates og þaðan til London Heatrow. Frá London fljúgum við með Icelandair, og lendum heima á Íslandi kl. 23:55.

*athugið að dagskrá getur tekið breytingum

Ferðin kostar : 995.000 kr.á mann m.v. 2 fullorðin saman í herbergi.

Einstaklingsherbergi kostar 155.000 kr. aukalega.

Hægt er að bóka sig í ferðina og greiða staðfestingargreiðslu hér

Staðfestingargreiðsla er 120.000 kr

Innifalið í ferðinni:

  • Flug frá Keflavík til Naíróbí og Zanzibar til Keflavík með Icelandair og Emirates
  • Flug frá Naíróbí til Zanzibar
  • Íslensk fararstjórn
  • Sérfróður innfæddur enskumælandi leiðsögumaður
  • Allar rútuferðir og safarí ferðir
  • Morgunverður alla daga
  • Gisting á hótelum í 12 nætur samkvæmt í ferðalýsingu
  • Fullt fæði í Masai Mara og Naivasha
  • Hálft fæði í Zanzibar (Hægt að uppfæra í All Inclusive)
  • Allar skoðunarferðir og aðgangseyrir skv. ferðaáætlun
  • 1 nótt á flugvallarhóteli í London
  • Allar ferðir milli flugvalla og hótela, komu og brottfarastaða (ekki á Íslandi)

EKKI innifalið:

  • Vegabréfsáritun til Kenía
  • Vegabréfsáritun til Tansaníu
  • Þjórfé
  • Drykkir
  • ETA fyrir England (nýtt frá 2. apríl 2025, kostar 10 pund)
  • Aukaferðir

Mikilvægt:

  • Mælt er með að fá bólusetningu gegn hinum hefðbundu sjúkdómum. Bóka má tíma og fá nánari upplýsingar hjá heilsugæslunni.
  • Vegabréf þurfa að gilda í 6 mánuði frá komudegi til Zanzibar